Heimavalmynd albúms
Úr heimavalmynd albúms geturðu flett í öllum myndaalbúmunum þínum, þ.m.t. þeim sem
innihalda myndir og myndskeið sem tekin voru með sérstökum áhrifsbrellum og einnig
efni sem þú hefur deilt á netinu í gegnum þjónustur á borð við Picasa™ og Facebook.
Þegar þú hefur skráð þig inn í slíka þjónustu getur þú unnið með efnið og skoðað myndir
á netinu. Í forritinu albúm getur þú líka bætt landmerkjum við myndir, gert einfaldar
breytingar og notað þráðlausa Bluetooth® tækni og tölvupóst til að deila efni.
1
Farðu aftur á heimaskjá albúmsforritsins til að skoða allt efni
2
Skoðaðu uppáhaldsmyndirnar og -myndskeiðin þín
3
Skoðaðu öll myndskeið sem vistuð eru í tækinu
4
Skoðaðu myndirnar þínar á korti eða í hnattstillingu
5
Skoðaðu allar myndir og myndskeið sem teknar hafa verið með myndavél tækisins þíns með
tæknibrellum
6
Skoðaðu allar myndir og myndskeið sem vistuð eru í ólíkum möppum í tækinu þínu
7
Skoða allar myndir með andlitum
8
Skoðaðu myndir og myndskeið í öðrum tækjum á sama neti
9
Opnaðu stillingarvalmyndina fyrir albúmsforritið
10 Opnaðu stuðning á vefnum
11 Skoðaðu myndir frá netþjónustum