Öryggisafritun og endurheimt efnis
Almennt ættir þú ekki að vista myndir, myndskeið og annað persónulegt efni eingöngu í
innra minni tækisins. Ef tækið verður fyrir tjóni, týnist eða er stolið er ekki hægt að
endurheimta gögn sem vistuð eru í innra minni þess. Mælt er með því að nota Xperia™
Companion-hugbúnaðinn til að taka öryggisafrit sem vista gögnin þín á öruggan hátt í
ytra tæki. Sérstaklega er mælt með þessari aðferð ef þú uppfærir hugbúnað tækisins í
nýrri útgáfu af Android.
Mælt er með því að tekið sé öryggisafrit af gögnum með Xperia™-öryggisafritunar- og
endurheimtarforritinu áður en skipt er yfir í sjálfgefnar stillingar. Með þessu forriti er hægt
að taka öryggisafrit af gögnum á netreikning, á SD-kort eða á ytra USB-geymslutæki sem
tengt er við tækið þitt með USB-millistykki:
Með Google-öryggisafrita- og endurheimtarforritinu geturðu búið til öryggisafrit af
gögnum á Google-þjóni.
Öryggisafrit gagna vistuð í tölvu
Notaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn til að taka öryggisafrit af gögnum úr tækinu
þínu í PC eða Apple
®
Mac
®
tölvu. Hægt er að taka öryggisafrit af eftirtöldum gögnum:
•
Símtalaskrár
•
Textaskilaboð
•
Dagbók
45
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
•
Stillingar
•
Margmiðlunarskrár eins og tónlist og myndskeið
•
Ljósmyndir og myndir
Öryggisafrit af gögnum búin til í tölvu
1
Opnaðu skjáinn á tækinu og tengdu það við tölvuna með USB-snúru.
2
Opnaðu Xperia™ Companion-hugbúnaðinn í tölvunni, fari hann ekki sjálfkrafa í
gang. Eftir stutta stund greinir tölvan tækið. Gættu þess að velja stillinguna
Flytja
skrár í tækinu.
3
Smelltu á
Öryggisafrit á aðalskjá Xperia™ Companion.
4
Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að taka öryggisafrit af gögnum í tækinu þínu.
Ef Xperia™ Companion er ekki uppsett þarftu að setja það upp þegar þú tengir tækið við
tölvuna.
Gögn endurheimt með tölvu
1
Opnaðu skjáinn á tækinu og tengdu það við tölvuna með USB-snúru.
2
Opnaðu Xperia™ Companion-hugbúnaðinn í tölvunni, fari hann ekki sjálfkrafa í
gang. Eftir stutta stund greinir tölvan tækið. Gættu þess að velja stillinguna
Flytja
skrár í tækinu.
3
Smelltu á
Endurheimta á aðalskjá Xperia™ Companion.
4
Veldu öryggisafritaskrá og pikkaðu síðan á
Næsta og fylgdu skjáleiðbeiningum til
að endurheimta gögn á tækið þitt.
Ef Xperia™ Companion er ekki uppsett þarftu að setja það upp þegar þú tengir tækið við
tölvuna.
Öryggisafrit af gögnum tekið með Xperia™ öryggisafritunar- og
endurheimtarforritinu
Með því að nota Xperia™ öryggisafritunar- og endurheimtaforritið geturðu tekið afrit af
gögnum á netinu eða staðbundið. Til dæmis geturðu tekið öryggisafrit af gögnum
handvirkt eða kveikt á sjálfvirkri öryggisafritun til að vista gögn reglulega.
Mælt er með því að tekið sé öryggisafrit af gögnum með Xperia™-öryggisafritunar- og
endurheimtaforritinu áður en skipt er yfir í sjálfgefnar stillingar. Með forritinu er hægt að
taka öryggisafrit af eftirfarandi tegundum gagna á netreikning, á SD-kort eða á ytra USB-
geymslutæki sem tengt er við tækið þitt með USB-millistykki:
•
Tengiliðir
•
Samtöl
•
Símtalaskrá
•
Dagbók
•
Pósthólf
•
Wi-Fi reikningar
•
Stillingar tækis
•
Forrit
•
Útlit Xperia™-heimaskjás
Eiginleiki fyrir sjálfvirka öryggisafritun settur upp
1
Ef þú ert að taka öryggisafrit af efni til að geyma í USB-geymslu þarf að tryggja að
geymslan sé tengd við tækið með USB-millistykki. Gakktu úr skugga um að SD-
kortið sé sett rétt í tækið ef þú gerir öryggisafrit á SD-kort. Ef þú ert að vista
öryggisafrit af efni á reikningi á netinu þarftu að gæta þess að skrá þig inn á
Google™ reikninginn þinn.
2
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
3
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Öryggisafrit og núllstilling.
4
Undir
Xperia™ öryggisafritun og endurheimt pikkarðu á Sjálfvirk öryggisafritun.
5
Til að kveikja á sjálfvirkri öryggisafritun pikkarðu á kveikja/slökkva-takkann.
6
Veldu hvar á að vista afritunarskrárnar.
7
Ef þú vilt geturðu valið tíðni afritunar, tímasetningu og þau gögn sem þú vilt taka
öryggisafrit af. Að öðrum kosti fer afritun fram samkvæmt sjálfgefnum stillingum.
8
Stillingar eru vistaðar með því að pikka á .
46
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Öryggisafrit tekið af efni handvirkt
1
Ef þú ert að taka öryggisafrit af efni til að geyma í USB-geymslu þarf að tryggja að
geymslan sé tengd við tækið með USB-millistykki. Gakktu úr skugga um að SD-
kortið sé sett rétt í tækið ef þú gerir öryggisafrit á SD-kort. Ef þú ert að vista
öryggisafrit af efni á reikningi á netinu þarftu að gæta þess að skrá þig inn á
Google™ reikninginn þinn.
2
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
3
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Öryggisafrit og núllstilling.
4
Undir
Xperia™ öryggisafritun og endurheimt pikkarðu á Fleira.
5
Pikkaðu á
Handvirk öryggisafritun og veldu svo áfangastað og þau gögn sem þú
vilt taka öryggisafrit af.
6
Pikkaðu á
Öryggisafrit.
7
Þegar búið er að gera öryggisafrit af gögnum pikkarðu á
Ljúka.
Öryggisafritsskrá breytt
1
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Öryggisafrit og núllstilling.
3
Undir
Xperia™ öryggisafritun og endurheimt pikkarðu á Fleira.
4
Pikkaðu á
Breyta öryggisafriti, veldu síðan öryggisafritunarstað og þær tegundir
gagna sem þú vilt eyða.
5
Pikkaðu á
Eyða gögnum.
6
Pikkaðu á
Í lagi til að staðfesta.
7
Eftir að gögnunum er eytt pikkarðu á
Ljúka.
Efni sem búið er að taka öryggisafrit af endurheimt
1
Ef þú vilt endurheimta efni úr USB-geymslu þarf að tryggja að geymslutækið sé
tengt við tækið þitt með USB-millistykkinu. Ef þú vilt endurheimta efni af SD-korti
þarftu að tryggja að SD-kortið sé rétt sett í tækið. Ef þú vilt endurheimta efni frá
Xperia öryggisafritunar- og endurheimtarþjónustu þarftu að gæta þess að skrá þig
inn á Google™-reikninginn þinn.
2
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
3
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Öryggisafrit og núllstilling.
4
Undir
Xperia™ öryggisafritun og endurheimt pikkarðu á Endurheimta gögn og
velur svo uppruna og gagnanna sem þú vilt endurheimta og gögnin.
5
Pikkaðu á
Endurheimta gögn.
6
Þegar efni hefur verið endurheimt pikkarðu á
Ljúka.
Mundu að öllum breytingum sem þú gerir á gögnum og stillingum eftir að þú tekur öryggisafrit -
s.s. nýjum forritum sem þú setur upp - verður eytt meðan á endurheimtingarferlinu stendur.
Öryggisafrit af gögnum tekið með Google-öryggisafrita- og
endurheimtarforriti
Með Google-öryggisafrita- og endurheimtarforritinu geturðu búið til öryggisafrit af
gögnum á Google-þjóni. Þú getur einnig kveikt á sjálfvirkri endurheimt til að endurheimta
forritagögn og stillingar þegar þú setur upp forrit upp á nýtt.
Með þessu forriti geturðu búið til öryggisafrit af eftirfarandi tegundum gagna:
•
Forrit
•
Bókamerki
•
Wi-Fi-netkerfi
•
Aðrar stillingar
Öryggisafrit gagna búin til á Google™ reikningi
1
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Öryggisafrit og núllstilling.
3
Undir
Google™ öryggisafritun og endurheimt pikkarðu á Taka öryggisafrit af
gögnum og pikkar svo á sleðann.
47
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Kveikt eða slökkt á sjálfvirkri endurheimt þegar forrit er sett upp að nýju
1
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Öryggisafrit og núllstilling.
3
Undir
Google™ öryggisafritun og endurheimt pikkarðu á sleðann Sjálfvirk
endurheimt.
48
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.